Prufutímar á þriðjudag og fimmtudag | Skrifað 03. September 2010 kl. 12:37
Við höldum áfram, enda allt búið að vera fullt í síðustu prufutímum! Minnum líka á Facebook - tökum vel á móti vinabeiðnum (Kettlebells Iceland).
Komdu af fítonskrafti inn í haustið og byrjaðu strax í kettlebells - það virkar!
Fyrsta skrefið er að melda sig í prufutíma.
Næsti prufutími verður á þriðjudaginn 7. september - það eru örfá sæti laus í hann. Við verðum svo með annan prufutíma á fimmtudaginn 9. september og erum byrjuð að taka á móti skráningum í hann. Báðir prufutímarnir byrja stundvíslega 16.30. Strax á eftir þeim er hefðbundinn kettlebellstími sem allir úr prufutímanum geta tekið þátt í.
Verð: 1.000 kr (gengur upp í æfingagjöld).
Næsta skref er að velja 12, 6 eða 3ja mánaða áskrift. Fast mánaðargjald og frjáls mæting í tíma!
Skráning og nánari upplýsingar: kettlebellsiceland@gmail.com / 696 1179
