Næsta þjálfaranámskeið: 5. október 2024
Staðsetning: Kettlebells Iceland, Engjavegi 12, Mosfellsbæ
Tímasetning: Laugardagur, 9.00 – 17.00
Kennari: Vala Mörk, yfirþjálfari Kettlebells Iceland
Námskeiðsgögn: Þátttakendur fá strax að námskeiði loknu sent kennslugögn á pdf-formi
Æfingar: Swing, Clean, Press,, Goblet Squat, Windmill, Turkish Get Up, One Legged Deadlift, Row, High Pull og Snatch
Verð: 69.000 kr
Skráning og nánari upplýsingar: Greiðsla á þátttökugjaldinu staðfestir skráningu á þjálfaranámskeiðið. Námskeiðið verður að greiða fyrirfram, engar undantekningar eru gerðar á því.
Greiðsla: Sendu tölvupóst með nafni þátttakanda, nafni greiðanda og kennitölu greiðanda á vala@kettlebells.is Hún útbýr greiðsluseðil sem birtist í heima/fyrirtækjabanka greiðanda.
Á þessu námskeiði verður farið yfir mikilvægustu ketilbjölluæfingarnar. Við förum mjög ítarlega í rétta tækni, hvernig maður kennir æfingarnar skref fyrir skref og hvernig maður greinir og leiðréttir mistök.
Við förum einnig yfir hóptímakennslu með ketilbjöllum, hvað þarf að hafa í huga þegar margir eru í tíma og hvernig best er að byggja upp góðar æfingar sem taka á öllum þeim þátttum sem styrktar- og úthaldstímar þurfa að hafa.
Til þess að fá kennsluréttindi í nafni Kettlebells Iceland þurfa þátttakendur að:
- Sýna fram á 100% tækni í öllum þeim æfingum sem farið verður yfir á námskeiðinu
- Sýna fram á kennsluhæfileika, að geta kennt byrjendum og leiðrétt mistök
Það er ekki nóg að mæta á staðinn til að fá kennsluréttindi, kröfurnar eru háar og það þarf að vinna fyrir réttindunum. Þeir sem ekki standast allar kröfur, geta komið í endurtekningarpróf síðar.