KB þrautin 2025!

Þrautin 2025 verður haldin í Mosfellsbæ, laugardaginn 17. maí 2025.

KB þrautin er frábært tækifæri fyrir vinahópa, fjölskyldur og vinnufélaga að takast saman á við fjölbreyttar, krefjandi og skemmtilegar þrautir í einstöku útivistarumhverfi Mosfellsbæjar. Þrautirnar verða um 30 talsins og hlaupið sjálft í kringum 10 kílómetra – við leyfum okkur að vera aðeins frjálsleg með skekkjumörkin 🙂

Verð: 8000 kr fullorðnir / 6000 unglingar (12-16 ára)

Skráning og nánari upplýsingar: vala@kettlebells.is

Takmarkaður fjöldi þátttakenda!